VEX II hefur fjárfest í hugbúnaðarfyrirtækinu Kóða ehf., og verður stærsti einstaki hluthafinn í félaginu. Seljendur eru stofnendur félagsins, þeir Dagur Gunnarsson, Thor Thors, Tómas Tómasson og Örn Þórðarson auk Péturs Thors og Jasnik ehf., félags sem er að fullu í eigu Höskuldar Tryggvasonar. Stofnendur félagsins munu áfram eiga stóran hlut í félaginu og koma að rekstri þess.
Kóði var stofnað árið 2009 og um 30 manns starfa hjá félaginu. Félagið býður upp á fjölbreyttar fjártæknilausnir ásamt því að safna, greina og dreifa markaðsgögnum. Kóði á og rekur meðal annars verðbréfaviðskiptakerfið KODIAK OMS, KODIAK Excel, útboðskerfið IPO, Hluthafaskrá og Kelduna sem er heimsótt af 120 þúsund notendum mánaðarlega. Vörur félagsins eru yfir 20 talsins og meira en 600 fyrirtæki nýta vörur og þjónustu Kóða. Áætluð velta félagsins á yfirstandandi ári er um einn milljarður króna og um 85% tekna eru áskriftartekjur.
„Þetta eru ánægjuleg tímamót fyrir Kóða, starfsfólkið hefur á síðustu 16 árum byggt upp öflugt hugbúnaðarhús sem er lykilþjónustuveitandi á íslenskum fjármálamarkaði. Þróunarstarf félagsins hefur skapað raunverulegt virði fyrir viðskiptavini, leyst ýmis viðfangsefni fjármálamarkaðarins og veitt aðgang að markaðsgögnum á hagkvæman hátt. Lausnir félagsins eru notaðar af öllum fjármálafyrirtækjum landsins auk þess sem eignastýringarfélög, lífeyrissjóðir og tryggingafélög eru stórir notendur. Við erum gríðarlega stolt af því hvar félagið er statt í dag og teljum tímapunktinn góðan til að fá inn öflugan aðila til að taka þátt í næsta kafla félagsins með okkur“ segir Thor Thors, forstjóri Kóða.
„Það hefur verið afar áhugavert að fylgjast með vexti Kóða á síðustu árum og við teljum áfram vera fjölmörg tækifæri til frekari vaxtar. Félagið býr yfir reynslumiklum hópi starfsmanna sem við ætlum okkur að styðja í frekari sókn á innlendum markaði“ segir Benedikt Ólafsson, eigandi hjá VEX.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og BBA//Fjeldco voru ráðgjafar félagsins og seljenda í viðskiptunum. Deloitte og LEX lögmannsstofa veitti kaupanda ráðgjöf.