VEX lýkur 15 milljarða fjármögnun

VEX lýkur 15 milljarða fjármögnun

VEX hefur lokið fjármögnun á 15 milljarða framtakssjóði sem ber heitið VEX II. Fjárfestar samanstanda af lífeyrissjóðum, öðrum stofnanafjárfestum og einkafjárfestum. Sjóðurinn er framhald af fyrsta framtakssjóði félagsins sem stofnaður var í maí 2021. VEX hefur frá þeim tíma fjárfest fyrir um 14 ma.kr. í fimm fyrirtækjum; Opnum Kerfum, Öryggismiðstöðinni, Icelandic Provisions og hugbúnaðarfyrirtækjunum AGR og Annata.

Áformað er að VEX II fjárfesti í 5-8 fyrirtækjum á næstu fjórum árum. Fjárfest verður í félögum sem hafa rekstrarsögu og sannreynt viðskiptamódel, bæði hefðbundnum rekstrarfyrirtækjum og eins fyrirtækjum sem eru á vaxtarstigi og þurfa fjármagn til þess að sækja fram. Í öllum tilfellum hefur VEX aðkomu að stjórnun félaganna og styður við stjórnendur og starfsfólk í því að byggja upp öflug félög með ábyrgum hætti.

Hjá VEX starfar reynslumikill hópur starfsmanna sem byggt hefur upp gott orðspor í framtaksfjárfestingum. Frá árinu 2011 hafa starfsmenn komið að fjárfestingum, fyrir hönd fjölbreytts hóp fjárfesta, í 19 fyrirtækjum fyrir yfir 65 ma.kr.