Davíð gengur til liðs við VEX

Davíð gengur til liðs við VEX

Davíð Stefánsson hefur verið ráðinn til VEX þar sem hann mun starfa sem fjárfestingarstjóri í framtaksfjárfestingum.

Davíð hefur starfað á fjármálamarkaði í yfir tólf ár, en síðustu sex árin hafi hann gegnt stöðu sjóðstjóra blandaðra og erlendra hlutabréfasjóða hjá Akta sjóðum. Þar áður starfaði hann hjá fjárfestingarbankanum PJT Partners í London, fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingabanka og í fyrirtækjaráðgjöf og greiningardeild Arion banka. Davíð hefur lokið B.Sc. námi í hagfræði frá Háskóla Íslands, M.Sc. í alþjóðafjármálum frá HEC Paris og prófi í verðbréfaviðskiptum.