OK festir kaup á upplýsingatæknihluta TRS

OK festir kaup á upplýsingatæknihluta TRS

Undirritaður hefur verið samningur um kaup OK á rekstri upplýsingatæknihluta TRS. OK er 55% í eigu framtakssjóðsins VEX I. Sá hluti starfsemi TRS sem hefur verið keyptur fellur vel að starfsemi OK, en bæði félögin sérhæfa sig í búnaðarsölu og þjónustu í upplýsingatækni. Þjónusta TRS við rafmagns- og fjarskiptakerfi er ekki hluti af kaupunum og verður sá hluti starfræktur í nýju félagi, TRS raf ehf.

Gunnar Zoega forstjóri OK: „Við viljum vera nálægt okkar viðskiptavinum og kaupin á TRS gera OK kleift að þjónusta fyrirtæki og stofnanir utan höfuðborgarsvæðisins með enn betri hætti. Mikil uppbygging hefur verið á Suðurlandi síðustu misseri og þykir okkur spennandi að taka þátt í þeirri vegferð.“

Gunnar Bragi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri TRS: “ TRS hefur sinnt þjónustu við upplýsingakerfi í tæpa þrjá áratugi með góðum árangri. Við sjáum mikil tækifæri fyrir okkar starfsfólk og viðskiptavini með sölu TRS til OK og höfum fulla trú á að þeim muni farnast vel.“

OK styður við íslensk fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í þeirra stafrænu vegferð og er lögð mikil áhersla að veita framúrskarandi lausnir og þjónustu. OK er með starfsemi og skrifstofur í Reykjavík, Sauðárkróki, Akureyri og nú á Selfossi.

Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.