VEX I lýkur sölu á OK og Öryggismiðstöðinni

VEX I lýkur sölu á OK og Öryggismiðstöðinni

Ásar hafa gengið frá kaupum á öllu hlutafé í OK og Öryggismiðstöðinni. VEX I, sjóður í rekstri VEX, var stærsti hluthafi beggja félaga, með um 58% hlut í OK og 44% hlut í Öryggismiðstöðinni. Þetta er fyrsta salan úr eignasafni VEX I.

Kaupsamningur var undirritaður í desember 2025 og Samkeppniseftirlitið samþykkti kaupin í lok október sl. Gengið var frá viðskiptunum 20. nóvember. Kaupverðið var greitt að hluta með reiðufé og að hluta með hlutabréfum í Ásum. Í kjölfarið á VEX I 7,4% hlut í Ásum og seljendahópurinn í heild 15,6%. Seljendur hafa skuldbundið sig til að eiga hlutina í að minnsta kosti tvö ár.

VEX I fjárfesti í OK í árslok 2021 og í Öryggismiðstöðinni árið 2023. Síðan þá hafa bæði félögin vaxið og styrkt stöðu sína verulega, jafnt með innri vexti sem kaupum á öðrum fyrirtækjum.

VEX mun áfram fylgja fjárfestingunni þétt eftir sem einn stærsti hluthafi Ása. VEX þakkar stjórnendum, starfsfólki og meðeigendum beggja félaga fyrir afar gott samstarf á liðnum árum.