VEX fjárfestir í AGR Dynamics

VEX fjárfestir í AGR Dynamics

Sjóðurinn VEX I hefur gengið frá kaupum á nýju hlutafé í hugbúnaðarfyrirtækinu AGR Dynamics sem og kaupum á hlutum Frumtaks og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í félaginu. Um er að ræða fyrstu fjárfestingu VEX I, en eftir viðskiptin mun sjóðurinn eiga um það bil 40% hlut í félaginu.

 

AGR Dynamics er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki sem býður upp á lausnir sem nýtast til hagræðingar í rekstri aðfangakeðjunnar.  Innkaupa- og birgðastýringalausnir félagsins gera heild- og smásölum kleift að lágmarka bundið fé í birgðum, auka þjónustustig og draga úr sóun. Fyrirtækið sinnir nú um tvö hundrað viðskiptavinum í fimmtán löndum og koma um 90% af tekjum erlendis frá. Félagið rekur starfsstöðvar á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Kanada.

 

Markmiðið með hlutafjárhækkuninni er að styðja og hraða enn frekar vexti AGR, en félagið hefur vaxið um að meðaltali 25% á ári undanfarin fimmtán ár. Stærstu hluthafar félagsins fyrir viðskiptin tóku jafnframt þátt í hlutafjárhækkuninni, auk VEX I og annarra nýrra hluthafa.

 

„Nýtt fjármagn mun gera okkur kleift að ná til stærri hluta markaðarins með skýjalausn (SaaS) sem hentar litlum og millistórum heild- og smásölum ásamt því að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins með núverandi vörum og þjónustu. Nú fara Frumtak og Nýsköpunarsjóður út úr hluthafahópnum eftir að hafa ávaxtað fé sitt vel. Við þökkum þeim afskaplega farsælt samstarf og horfum nú til framtíðarinnar með nýja fjárfesta um borð,“ segir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri AGR Dynamics.

 

„AGR Dynamics var ein af fyrstu fjárfestingum Frumtaks árið 2009 og hefur vegferðin með félaginu verið afar ánægjuleg og samstarf við starfsfólk og hluthafa verið til fyrirmyndar“ segir Svana Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Frumtaks. „Félagið hefur á þessum tíma orðið leiðandi í birgðastýringalausnum og sýnt og sannað hvað slíkar lausnir þurfa til að bera til að skila þeim árangri sem til er ætlast. Nú þegar Frumtak hefur lokið vegferð sinni með félaginu er ánægjulegt að sjá sterka fjárfesta koma að félaginu sem gerir því kleift að nýta þá miklu vaxtarmöguleika sem eru fyrir hendi”

 

VEX I er tíu milljarða framtakssjóður í stýringu VEX, sem er rekstraraðili sérhæfðra sjóða með áherslu á óskráðar fjárfestingar. VEX I fjárfestir í óskráðum fyrirtækjum sem eru að sækja nýtt hlutafé til vaxtar auk stöndugra rekstrarfyrirtækja þar sem sjóðurinn sér tækifæri til umbóta og aukinnar virðissköpunar.

 

Benedikt Ólafsson hjá VEX:

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka sá um sölu- og fjármögnunarferlið og var ráðgjafi AGR Dynamics, Frumtaks og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í viðskiptunum.