Framtakssjóður í rekstri VEX hefur náð samkomulagi um kaup á nýju hlutafé sem samsvarar 34% hlut í Héðni eignarhaldsfélagi ehf., móðurfélagi Héðins hf. Í samstæðunni eru jafnframt Héðinshurðir og hugbúnaðarfyrirtækið Magni Solutions.
Núverandi eigendur selja ekki af sínum hlut og munu áfram leiða félagið ásamt nýjum hluthafa. Það eru þeir Guðmundur Sveinsson, fyrrverandi stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Héðins um árabil, Halldór Lárusson stjórnarformaður og Eðvarð Ingi Björgvinsson framkvæmdastjóri félagsins.
Stuðningur við vöxt og alþjóðleg tækifæri
Héðinn hefur í rúma öld þjónustað sjávarútveg, orkufyrirtæki og stóriðju og byggt upp traust og langvarandi viðskiptasambönd. Aðkoma VEX mun styðja við frekari vöxt og uppbyggingu á kjarnastarfsemi Héðins, auk þess sem reynsla VEX af fjárfestingum í hugbúnaðarfélögum mun nýtast í sókn Magna Solutions. Magni hefur þróað stafræna þjónustugátt sem auðveldar viðhald flókins vél- og tækjabúnaðar, til dæmis í skipum, verksmiðjum, vatnsaflsvirkjunum og á olíuborpöllum.
Áhersla verður lögð á áframhaldandi nýsköpun með orkusparandi lausnum, aukinni sjálfvirkni og hámörkun á nýtingu auðlinda. Nýverið hóf félagið samstarf við alþjóðlega véltæknifyrirtækið Sulzer í þjónustu við jarðvarmavirkjanir sem styður við vaxtaráform félagsins á komandi árum.
Ný spantækni, sem Héðinn hefur þróað og tryggt sér einkaleyfi á, skapar jafnframt mikil sóknarfæri hér á landi og erlendis. Tæknin skilar framúrskarandi orkunýtingu í ferlum sem eru gríðarlega orkufrekir ásamt lægri rekstrarkostnaði og auknum afköstum.
„Það er mikill styrkur fyrir Héðin að fá VEX inn í hluthafahópinn á þessum mikilvægu tímamótum. Við höfum byggt upp sterkan grunn í þjónustu við sjávarútveg, fiskeldi og orku- og iðnfyrirtæki, auk þess að þróa vörur eins og Héðinshurðir og Magna. Með öflugum fjárfestum skapast tækifæri til að flýta þróun og markaðssetningu á spantækninni okkar, sem við teljum að geti orðið ein byltingarkenndasta nýjung í vinnslu prótíns og hliðarstrauma í áratugi“, segir Eðvarð Ingi Björgvinsson, framkvæmdastjóri Héðins.
„Það er ekki sjálfgefið að rúmlega aldargamalt iðnfyrirtæki með sterkan kjarnarekstur sé jafnframt í fararbroddi í nýsköpun. Við sjáum mikil tækifæri í þessari samsetningu og teljum félagið falla vel að stefnu VEX um að styðja við öflug íslensk fyrirtæki með skýra vaxtarmöguleika. Fram undan er spennandi samstarf við starfsfólk og aðra hluthafa um áframhaldandi sókn á öllum sviðum rekstrarins“, segir Trausti Jónsson, eigandi hjá VEX.
Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
LOGOS og Deloitte voru ráðgjafar kaupanda og Mörkin lögmannsstofa ráðgjafi Héðins.
Um Héðin hf.
Véltæknifyrirtækið Héðinn hf. var stofnað árið 1922 og þjónustar sjávarútvegs- og iðnaðarfyrirtæki. Höfuðstöðvar eru við Gjáhellu í Hafnarfirði og starfa þar um 150 manns. Félagið veitir heildarlausnir á sviði véltækni, hönnunar og mannvirkjagerðar, auk framleiðslu og sölu á sérhæfðum lausnum á borð við Héðinshurðir og hugbúnaðar- og þjónustugáttina Magna.