Forstjóraskipti hjá Öryggismiðstöðinni

Forstjóraskipti hjá Öryggismiðstöðinni

Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar og mun hefja störf í ágúst næstkomandi. Edda Rut tekur við af Ragnari Þór Jónssyni sem óskað hefur eftir því að láta af störfum en hann hefur starfi forstjóra undanfarin 20 ár. Ragnar Þór mun áfram koma að starfsemi félagsins með virkum hætti og taka sæti í stjórn þess á næsta aðalfundi.

Edda Rut hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri. Hún hefur frá árinu 2019 gengt fjölbreyttum stjórnunarstöðum hjá Eimskip, síðast sem framkvæmdastjóri Innanlandssviðs. Þar áður starfaði hún hjá Íslandsbanka í tólf ár í stjórnunar- og sérfræðihlutverkum, síðast sem forstöðumaður sölu- og viðskiptastýringar á fyrirtækja- og fjárfestasviði bankans.

„Við bjóðum Eddu Rut velkomna til starfa og hlökkum til að vinna með henni að áframhaldandi vexti félagsins. Um leið viljum við þakka Ragnari Þór fyrir farsæla forystu og ómetanlegt framlag til uppbyggingar Öryggismiðstöðvarinnar síðustu tvo áratugi, en á þeim tíma hefur velta félagsins rúmlega tífaldast. Undir stjórn Ragnars hefur byggst upp öflug liðsheild sem lagt hefur grunn að sterkri stöðu Öryggismiðstöðvarinnar á markaði og skapað góðan grundvöll fyrir næsta kafla í sögu félagsins,“ segir Benedikt Ólafsson stjórnarformaður Öryggismiðstöðvarinnar.

„Ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að leiða Öryggismiðstöðina, sem er traust og framsækið þjónustufyrirtæki í góðum og fjölbreyttum rekstri. Viljinn til að sækja fram er skýr og tækifærin til frekari vaxtar eru spennandi. Ég hlakka til að vinna með því öfluga fólki sem starfar hjá félaginu og þróa áfram fjölbreyttar og traustar lausnir sem skapa virði fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Edda Rut Björnsdóttir ný ráðinn forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar.