Unnar Karl Jónsson hefur störf hjá VEX

Unnar Karl Jónsson hefur störf hjá VEX

Unnar Karl Jónsson hefur verið ráðinn til VEX þar sem hann mun starfa sem sérfræðingur í framtaksfjárfestingum.

Hann starfaði áður hjá fjárfestingarbankanum Jefferies í London og þar áður sem greinandi hjá Altus Group. Unnar hefur lokið B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í fjármálum frá King’s College London.