VEX II fjárfestir í Rafmiðlun

VEX II fjárfestir í Rafmiðlun

VEX II hefur fjárfest í um 73% hlut í Rafmiðlun, leiðandi rafverktakafyrirtæki á sviði lágspennu á Íslandi. Stærstu seljendur eru stofnendur félagsins, Baldur Á. Steinarsson og Björgvin R. Pálsson, auk annarra lykilstarfsmanna. Seljendur fara áfram með verulegan hlut í félaginu og taka virkan þátt í rekstri þess.

Rafmiðlun veitir heildstæða þjónustu á sviði lágspennu, allt frá hönnun og ráðgjöf til efnisöflunar og framkvæmdar, og þjónustar fyrst og fremst stærri fyrirtæki, iðnað, stórnotendur raforku og opinbera aðila. Félagið var stofnað árið 1996 og er með höfuðstöðvar í Kópavogi auk annarra starfsstöðva. Hjá félaginu starfa yfir 120 manns, auk undirverktaka og annarra þjónustuaðila. Velta félagsins nam um 3,6 milljörðum króna árið 2025.

„Á þessum tímamótum hjá Rafmiðlun erum við stoltir og þakklátir öllum þeim frábæra hóp sem hefur byggt upp eitt stærsta og öflugasta rafverktakafyrirtæki Íslands. Félagið hefur aldrei staðið betur, er í öflugum vexti og fjölmörg tækifæri framundan. Við erum virkilega spenntir fyrir þeirri vegferð sem framundan er og höfum mikla trú á að tilkoma VEX hafi jákvæð og styrkjandi áhrif á næsta kafla í sögu félagsins.“ segja Baldur og Björgvin, sem stofnuðu Rafmiðlun fyrir 30 árum.

„Eftirspurn eftir sérhæfðri rafverktakaþjónustu hefur aukist hratt samhliða uppbyggingu í iðnaði, orku og innviðum. Rafmiðlun hefur byggt upp mjög sterka stöðu á þessum markaði, ekki síst fyrir tilstilli framúrskarandi hóps starfsmanna sem hefur byggt upp mikla þekkingu og traust viðskiptasambönd yfir langan tíma. Við hjá VEX sjáum mikil tækifæri að styðja við þennan öfluga hóp, áframhaldandi vöxt og uppbyggingu Rafmiðlunar.“ segir Davíð Stefánsson, eigandi hjá VEX.

Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

KPMG var ráðgjafi félagsins í viðskiptunum. BBA//Fjeldco og Deloitte veittu kaupanda ráðgjöf. Nánari upplýsingar veitir Baldur Á. Steinarsson, framkvæmdastjóri Rafmiðlunar.